Pillows

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Hamingja ennþá...

Nú er komið út úr tveimur prófum! Kröfurétti og réttarfari. Mín náði báðum - hæ hó og jíbbííjei. Á eftir að fá út úr refsiréttarprófinu sem gekk verst í minningunni allavega, ótrúlegt alveg hreint hvað maður gleymir þessu fljótt, man varla hvað var spurt um á þessu prófi. Var búin að læra mest og best undir þetta andsk.. próf og svo koma "þeir" með 4 tíma próf sem maður á að gjöra svo vel að taka á 3 tímum. Fengum skitið korter til að reyna að lappa upp á klúðrið - isssss!! Leiðinlegt þegar maður getur ekki látið ljós sitt skína vegna svita og titrings við að klára prófið. Það átti að koma út úr þessu prófi í dag en er ekki ennþá komið. Ég og bekkjarsystir mín sátum hér heima í taugaæsingi yfir tölvunni í dag að bíða eftir blessaðri einkunninni en ekki kom hún.. fengum í staðinn að vita að við náðum hinum tveimur! Ótrúlegt hvað svona bið getur framkallað mikil líkamleg viðbrögð eins og nettan sting í bumbuna og titrandi hendur og þó hefði ég talið mig frekar easy going.. Jæja maður fær í það minnsta námslán og það er það sem máli skiptir (he hemm, segir hún í örvæntingu sinni). Já og endurgreiðsluna frá Kópavogsbæ vegna leikskólagjaldanna. Nú þarf maður ekki bara að standa sig til að fá námslánin, heldur þarf maður nú að sýna fram á sama árangur (75%) til að fá endurgreitt frá Kópavogsbæ. Nú greiðir maður nefnilega fullt gjald en fær svo námsmannaafsláttinn þegar einkunnir koma. Pressa, pressa...

Skólinn byrjar ekki fyrr en 9. janúar og þá er námskeið vegna B.A. ritgerðarinnar sem stendur til 13. janúar. Sjálfir fyrirlestrarnir byrja ekki fyrr en 16. janúar skilst mér. Er að reyna að koma mér í gang samt. Ætla upp í skóla á morgun svona rétt til að koma mér í fyrsta gírinn í það minnsta þó að ég geri áreiðanlega ekki mikið. Hmmm maður ætti kannski að fara að snúa sólarhringnum við og fara svona einu sinni "snemma" að sofa!

God nat,
Mamma

2 Comments:

Blogger GHH sagði...

Elsku besta Ragna... en gaman að sjá að þú ert með bloggsíðu. Og til lukku... til lukku... til lukku með prófin þín. Hlakka til að halda upp á það og ýmislegt fleira þegar ég kem til Íslands.

6:41 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ hó og jibbí jei!!! Eru bara allir farnir að blogga? Shit hvað ég er spennt yfir þessu :) Hlakka til að lesa bullið í þér og þínum!! Og til hamingju með prófin þín!

Kveðja, Þórunn-sem-er-ekki-með-blogg

3:22 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home