Ennþá meiri hamingja...
..þetta hafðist allt saman. Síðasta prófið fór langbezt og allt í lukkunnar velstandi hér á þessum bæ - hefði satt best að segja ekki getað farið betur (ja nema ég hefði lagt allan minn tíma í lærdóm og engan í mig og mína sem er ekki tilgangurinn með lífinu hef ég komist að eftir lestur margra sjálfshjálparbóka - segir sú sem á eina, sem reyndar var lesin og sú var ekki góð skal ég segja ykkur en það er annar handleggur..). Lánin í höfn og afsláttur af leikskólagjöldum einnig. Annars er þetta alveg frábært hjá Kópavogsbæ sko - maður þarf að skila vottorði frá skólanum um að maður hafi staðist prófin á haustönninni og sé skráður í nám en ekkert svoleiðis vottorð er til hjá háskólanum. Fékk bara prentaðan lista yfir allan námsferilinn (kemur Kóp.bæ. auðvitað ekkert við) en fékk náðarsamlegast að fá fellt út fallið mitt og einkunnirnar enda er friðhelgi einkalífsins mér afar hugleikið verandi í þessu námi sem ég er í! Meðaleinkunnin varð reyndar eftir og ég af hugsjón, auðvitað, strikaði hana út með svörtu tússi! Hélt einhvern veginn að ég myndi svo bara fá pening í hendurnar fyrir, en nei nú sko verður niðurfelling og afsláttur af næstu leikskólagjöldum sem nemur afslættinum sem við hefðum átt að fá í haust. Ég er alls ekki á móti þessum reglum því að þetta hendir út svindlurunum því það borgaði sig víst að skrá sig í háskólann og greiða "skráningargjaldið" og fá svo námsmannaafsláttinn af leikskólagjöldunum - en að nokkur hafi í alvörunni gert þetta veit ég ekki (þeir hljóta í það minnsta að hafa háan vesenaþröskuld) en einhver hlýtur ástæðan að vera fyrir þessari breytingu. Fannst bara einhvern veginn enginn vita neitt þegar ég hringdi þangað en því verður nú áreiðanlega kippt í liðinn... og svo hafa þeir nú sagst ætla að taka tillit til allra aðstæðna þannig að ef maður skyldi nú falla í meira en 75% ætti maður nú að geta fengið einhverjar undanþágur...
Nú stendur yfir heimildarleit mikil - fyrir blessaða BA ritgerðina sko. Ég á áreiðanlega eftir að leggja þetta blogg undir væl yfir þessari ritgerð en so be it. Ég hlakkaði ótrúlega mikið til að byrja á þessu en svo þegar ég er byrjuð þá einhvern veginn nenni ég ekki. Gefst ekki upp samt! Þræla mér í gegnum dönskuna, sænskuna, norskuna og enskuna með hjálp einstaka orðabóka og fer sífellt fram. Taldi mig nokkuð góða í að lesa þessi tungumál að minnsta kosti en hef komist að því lestur lögfræðitexta er allt annað en að lesa rauðu seríuna, Agöthu Christie og Anders And á dönsku og auðvitað hinn sænska Kalle Anka (Anna Linda þú leiðréttir mig bara ef ég er að uppnefna frænda þinn eitthvað). Jafnvel enskan getur snúist upp í óskiljanlegan texta og hef ég þó ófáar enskar Agöthur lesið og ófáa ameríska sápuóperuna séð, meira að segja kíkt á Matlock og fleiri góða og einhverja lögfræðifrasa hlýtur maður að hafa pikkað upp af því. En á endanum hlýtur þetta að hafast!
Kv. Mamma

9 Comments:
áfram þú Ragna!
Til hamingju með prófin þín :)
En þetta með leikskólagjöldin, er þetta ekki týpískt Kópavogsbær? Þó þetta sé alveg gott þannig séð...
2:21 e.h.
Alveg hreint týpískt - pínu svona smábæjarfílingur enn í þeim, eins og þeir fatti ekki að þetta er orðin "stórborg"... annars er gott að búa í Kópavogi þó það sé kannski ekki gott að vinna fyrir þá he he ;)
Mamman sjálf
2:27 e.h.
Talandi um leikskólamál!!! Ég var að reikna það út að með börnin mín tvö þá borga ég 17 þúsund krónum meira í Kópavogi en ég myndi greiða í Reykjavík! Bæði er grunngjaldið lægra, afslátturinn meiri og svo eru 5 ára börn með 3 tíma gjaldfrjálsa fyrir hádegi. Reykjavík here I come!!!!
3:46 e.h.
Já og til hamingju með síðasta prófið elsku Ragna mín :)
3:47 e.h.
Og klukkan á heimasíðunni er kolvitlaus! Kl. er 15:50 núna en ekki 07:46 en það er nú annað mál.
Þrjár athugasemdir á nokkrum mínútum - ætli þetta sé heimsmet?
Kv. Þórunn heimsmethafi
3:48 e.h.
Þórunn þetta átti sko að vera svona súrrelískt allt saman - tíminn annar en hann er í alvörunni sko! Nei - tímanum hefur verið kippt í lag. Hey og 17þ kall - nú er hægt að taka eitthvað verulega smart á raðgreiðslum maður!! Þú myndir nú samt sakna æskustöðvanna eða í það minnsta hugsa til þeirra með yl í hjarta, þrátt fyrir okur á okur ofan.
Já og takk fyrir hamingjuóskirnar mýsnar mínar!
Kv. Randý
7:16 e.h.
Jahá! Með þessum sparnaði er hægt að hætta að vinna - vakna bara á morgnana til að eiga smá stund með sjálfum sér og "leggja sig" svo til hádegis - stunda jólaskreytingasíður á netinu allan daginn - borða humar og kavíar í morgunmat og so on :) Skil ekki hvað ég er að hugsa að vera ekki löngu farin úr Kópavogi.....
EEENNNN þrátt fyrir allt þá er ég og verð alltaf Kópavogsbúi, ég skrepp bara kannski tímabundið yfir í annað sveitarfélag....!!!
8:57 e.h.
Iiiiiilsku Ragna mín,
til lukku með prófin. Þetta kallar á celebration þegar ég kem heim. Tilefnin hafa nú oft verið minni!
12:54 e.h.
Ég meina náttúrulega að "ef ég fell í meira en 25%". Maður fer varla að falla í meira en 75% þá er maður væntanlega á rangri hillu eða?
R
6:03 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home