Furðulegt...
.. að ég skuli vera meyja. Sögurnar segja að þær séu alveg ofur-skipulagðar en ég vil ekki endilega kannast við það! Erum að fara út á þriðjudaginn og ég ætlaði að vera búin að: taka til heima, þvo hvert einasta snifsi sem í óhreina tauinu er, vera komin svo miklu, miklu lengra með ritgerðina og heimildalestur, plokka og lita augnabrúnir, kaupa bikiní, sólarvörn o.s.frv. Þetta ætlaði ég að vera búin að gera og fleira til fyrir helgi svo ég gæti nú "slappað" af um helgina því hún verður annasöm (út að borða á föstudag og þorrablót á laugardag). Svo veit ég varla hvenær við fljúgum út á þriðjudag og hvernig við förum út á flugvöll - læt Gamla Mund bara um það að sjá um svoleiðis smáatriði. Veit um tvær sem væru nú alveg með þetta á hreinu (blikk, blikk girlfriends-in mín með skipulagsáráttuna á háu stigi - kannist þið við ykkur?). Reyndar verð ég að viðurkenna að ég er búin að skipuleggja í þaula hvað ég ætla að KAUPA (fallegur listi í mörgum litum).
Meyjur eru líka smámunasamar (þó það sé sykurhúðað í blessuðum stjörnuspánum) en það kannast ég betur við. Ætlaði að skúra forstofuna í gær - endaði með því að ég "þurfti" að þvo veggina, gereftin, loftið og útidyrahurðina líka og ekki nóg með það heldur líka hvern og einn einasta skó. Svo þegar það var búið ætlaði ég "aðeins" að stjúka yfir hilluna í fatahenginu en það endaði í endemis vitleysu og nota bene skipulagningu hinna ýmsu trefla og vettlinga (hmm er ég búin að hrekja þá fullyrðingu mína að ég sé ekki haldin skipulagsáráttu). Gat ekki hætt!!
Hef komist að því að jafnt og þétt álag hentar mér ekki eins vel og að taka'etta bara í skorpum - dugleg einn daginn en endalaust löt hinn daginn - eða er þetta frestunarárátta?
Kv. R. Panda

9 Comments:
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
3:12 e.h.
Huhumm...skipulagsárátta.... ég held að ég neyðist til að taka það á mig. Mig grunar líka sterklega hver hin manneskjan er :)
Áður en ég fór til Króatíu var ég búin að kynna mér hvar hótelið væri staðsett nákvæmlega og fjarlægð í matvöruverslanir, ströndina, veitingastaði og annað. Svo ég tali nú ekki um það að ég var að sjálfsögðu búin að panta bílaleigubíl með hálfsárs fyrirvara :)
Ég prentaði líka út kort af Króatíu og merktin inn á það öll helstu tourist attractions og var búin að skipuleggja hvern dag fyrir sig. Gaman með mér í fríi???
Ég held að það sé líka ágætt að taka þetta á hinn mátann einu sinni og slaka bara á yfir fríinu. Spurning hvort það takist hjá mér?
Kv. Þórunn skipulagsSJÚKA :)
3:15 e.h.

Hi hi - en sko verandi á hinum endanum - þá er afar hentugt að hafa einhvern svona með sér í fríi!! Pant taka þig alltaf með mér í frí - þarf ekki að gera neitt sjálf mú ha ha ha!!
Kveðja, hún sjálf..
3:17 e.h.
Áttirðu ekki örugglega bara við Þórunni??? Veit ekki hvaða önnur vinkona þín fellur undir þessa skilgreiningu.
4:33 e.h.
...segir hún sakleysið uppmálað..
4:55 e.h.
.. ehe þetta var ég RP..
4:56 e.h.
Jei! Búin að finna enn eitt bloggið :). Stuð smuð! Rosalegur kraftur er í þér Ragna, bæði í náminu og heimafyrir. Ég er líka svona skorpukona, ef ég byrja á einhverju einu litlu þá rústa ég því svæðinu á nó tæm og skipulegg upp á nýtt. En það er svo sem ekkert slæmt, en þó aðallega hina dagana þegar letin er allsráðandi!
Kv. Bryndís Ýr
p.s. ég myndi nú ekki bara taka með mér bikini og stutt pils á Kanarí - hef heyrt að hitinn sé ekkert endilega svaaakalegur þessa dagana :S En hann hækkar nú kannski snarlega þegar þið familían lendið!
4:23 e.h.
Nei það er víst alveg peysu- og buxnaveður á kvöldin og svona 20 - 25 gráður á daginn... ohh hvað þetta verður næs - ekki of heitt og ekki of kalt, alveg sérhannað fyrir mig!!
Ekki-á-morgun-heldur-hinn-Ragna...
2:40 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home