Holtið...
.. er virkilega barnvænn staður. Var pínu búin að kvíða því að fara með soninn-næstum-því-fimm-ára á sjálft Holtið en það gekk svona glimmrandi vel. Drengurinn var prúður og stilltur og það hjálpaði gríðarlega að þjónustan við hann var alveg súper. Þeir hafa greinilega fengið börn í heimsókn áður en það virðist ekki alltaf vera tilfellið þegar maður fer svona út að borða. Við byrjuðum á að setjast inn á bar í fordrykk. Hans hátign pantaði sér mjólk á barnum eins og hann hafi aldrei gert annað annað. Settumst svo inn og þar beið hans "hásæti" við borðið. Hann fékk svo fisk (fínasta karfa að ég held) sem hann nartaði svona rétt í enda að spara pláss fyrir súkkulaðikökuna sem búið var að múta honum með :) Svo settumst við aftur inn á bar eftir mat og þar sofnaði hann! Ekki margir sem sofna á barnum á Holtinu ímynda ég mér. Við fullorðna fólkið vorum heldur ekki illa haldin enda maturinn gríðarlega góður - með því betra sem mann fær sko - slurp og slef... og það er greinilegt að það er einhver sérlegur eftiréttameistari þarna (en ég ber mikið skynbragð á hin ýmsu sætindi - mætti segja að sætindi og eftirréttir séu fyrir mér eins og vínið fyrir vínáhugamanninn he hemm..).
Í gær fórum við foreldrar svo aðeins út á lífið... Afi P og drengurinn höfðu það gott yfir "Staugstofunni" á meðan. Núna á sunnudegi er sannkallað letilíf, pabbi að leggja sig, drengur í PS2 (bændurnir á heimilinu fengu hana í bóndadagsgjöf) og mamman að surfa (en þyrfti að vera að læra *andvarp*)
K&K, ErrPa

2 Comments:
Góða ferð á morgun. Ég vona að það verði júbblandi stemmning hjá ykkur famelíunni. Við hittumst svo þegar þú kemur heim - þú brún og sæt og ég enn að jafna mig á prófa-ljótunni. Get ekki beðið eftir að smella á þig einum stórum (hann verður örugglega blautari með hverju glasinu - that´s a promise!)
9:38 e.h.
Ég heimta Kanaríeyjaferðarblogg á diskinn minn strax í dag!!!!
Væri gaman að heyra hvað þið gerðuð af ykkur í fríinu :)
Looooove, Þórunn
9:52 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home