Kanarí, Kanarí, Kanarí, rí, rí, rí
Kanarí í frí er málið. Maður hafði dálítið tengt þennan stað við gigtveikt og gamalt fólk (hmmm og tengdóin sem eru reyndar kornung) en raunin er að þarna er fólk á öllum aldri þó að gráhærðir séu þarna í meirihluta, sérstaklega á hótelinu. Þegar út af hótelinu var komið þá blasti við fólk á öllum aldri. Gamla liðið sat sem fastast á sínum bekkjum sem það hafði slegist um í ljósaskiptunum og fór ekki þaðan allan daginn held ég! Í hótelgarðinum fór sem sagt fram steiking, vægast sagt, skorpubrúnir ellismellir hvert sem litið var. Stríðið um sólbekkina stóð greinilega sem hæst því að þegar maður kom út í garð eftir að hafa sofið út eins og alvöru Íslendingur (maður er í fríi for crying out loud!!) þá voru handklæði á hverjum bekk en ekkert fólk að sjá. Eftir morgunmat fylltist svo allt. Þeir á hótelinu höfðu þó fulla stjórn á þessu öllu saman og jakkafataklæddur maður gekk um með blokk, penna og skeiðklukku að mér sýndist og tók handklæði miskunnarlaust af þeim bekkjum sem honum þóttu standa of lengi mannlausir en handklæddir. Gömlu vinir mínir voru assgoti harðir í sólböðunum og sátu þrátt fyrir að rigningaskýin hefðu hrannast upp og það lá við rigningu.
Við fjölskyldan vorum ekki á þeim buxunum að liggja í sólbaði alla daga og gerðum heilmikið, sbr. neðangreindur listi:
1. Tölvuleikjasalurinn var það sem heillaði ungann mest, vann mömmu sína og pabba 100 sinnum í þythokkí
2. Mínigolf - afskaplega spennandi líka og þar sigraði Þorri foreldra sína líka (hmmm)
3. Verslunar- og skoðunarferð til Las Palmas - það þurfti aukatösku..
4. Go-Kart - tvisvar. Þar kepptu "gömlu feðgarnir" og Þorri jr. og Mæja frænka fóru á míní-mótorhjól
5. Crocodillo-park. Þar voru krókódílar, skjaldbökur, fuglar, hestar, bambar, tígrisdýr, blettatígur, apar, talandi fugl o.fl. Leiðsögumaðurinn var lítill hundur!
6. Tívolí - tvisvar - og parísarhjól fyrir mömmu.
7. Tvisvar leigður bíll. Seinasta daginn brunuðum við fjölskyldan og afi P. hringinn í kringum eyjuna m.a. eftir hrikalegum fjallvegi.
8. Kafbátur þar sem undirdjúpin á 25 m dýpi voru könnuð.
9. Ströndin og sjórinn.
10. Fimmtugsafmæli ömmunnar. Lillinn svaf af sér matinn en vaknaði hress í kráarröltið á eftir.
11. Nokkrar sundlaugarferðir í ískalda laugina og smá sólböð.
12. Almennt flakk og flandur...
Þorri undi sér afskaplega vel í sólinni - hann er sannkallað hitabeltisdýr og það var rétt eins og hann hefði alist upp í heitustu S-Ameríku því hann vildi vera kappklæddur meðan að foreldrarnir voru á stuttbuxum og hlýrabolum. Frændsystikinin öll sex voru prúð og léku sér fullt saman og það skemmtilegasta á kvöldin var leikgrindin í hótelgarðinum
Veðrið var gott mest allan tímann og það rigndi einu sinni. Hitastigið var almennt svona um og yfir 20°, sól alla daga en stundum skýjað hluta úr degi (fyrir veðurþyrstar manneskjur;)).
Kveðja Kanarí-konan og co.

2 Comments:
ohh þetta hefur örugglega verið alveg ííííndislegt þarna á Kanarí :)
4:57 e.h.
Já þetta var geðveikt á Kanarí :)... fer þangað pottþétt aftur og kannski bara ein í djammferð ... hhmmmmm eða sólbaðsleti .. kannski bara :)
kv Dadda ;)
3:32 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home