Pillows

miðvikudagur, mars 21, 2007

I got the finger.. (road rage?)

Já mér var gefinn "fingurinn" í morgun. Það var hressandi!!!

Opið bréf til gefanda "fingursins"!
Þú eigandi hvítrar, eldri, skítugrar (sjáið að mér er ekki runnin reiðin), japanskrar, jeppadruzlu (Nissan eða Toyota) sem varst á hringtorginu við Hamraborg ættir að skammast þín... Ég viðurkenni fúslega að ég var dálítið að flýta mér en datt ekki í huga að ég væri að svína fyrir þig og ég er ansi hrædd um að hraði þinn hafi ekki verið löglegur á þessari stundu sem við áttum saman í hringtorginu?!!!??

Kjær kveðja, "Svínarinn"!

Annars held ég að hann (sýndist þetta vera karlmaður og hreinlega geri ráð fyrir því) hafi nú skammast sín því um leið og "fingurinn" var kominn upp fór hann jafnharðan aftur niður. En svona hefur áhrif á mann - fyrst varð ég alveg ægilega reið - langaði að elta hann og skamma hann og þvínæst langaði mig að taka niður númerið og skoða hver gæti verið svona ægilega vondur við MIG. Svo fór ég að skammast mín bæði fyrir þessar tilfinningar og fór að hugsa hvort að ég hefði nú kannski gert eitthvað rangt. Nú er ég komin á það stig að ég hugsa hlýlega til vinar míns og á alltaf eftir að gera.. Verst að nú þegar ég skrifa þetta þá endurlifi ég allar þessar tilfinningar og er orðin pínulítið reið út í vininn aftur! Jæja bezt að láta reiðina renna af sér og skoða hvað þeir eru að segja í skuldaskilum.

Yfir og út..

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

LOL LOL LOL

"Hver gæti verið svona ægilega vondur við MIG" Ég kannast við þessa tilfinningu, ef ég óvart geri eitthvað rangt í umferðinni þá bregður mér svo mikið að það eitt er næg refsing þótt það fari einhver ókunnugur líka að sýna dónaskap!!!

*Hnuss* Þetta er nú bara alíslenski ruddaskapurinn!

Kveðja, Þórunn komin með fordóma ;)

9:39 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Æ þetta var eitthvað klaufalega orðað hjá mér en þú skilur mig ;) Er á bókasafninu skilurðu, maður er oft ekki alveg í lagi þegar maður er þar......

Ég VEIT að ÞÚ kannast við það!

9:41 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

LOL jú jú kannast við það - bókasöfn og lesstofur eru af hinu illa. Svo átti hann heldur ekkert að vera svona vondur við MIG - ég varð sár...
Svo sá ég hann í morgun og langaði mikið til að gef'onum fingurinn til baka.. En held honum sé næg refsing að mæta mér á hverjum morgni múhahahaha...

Kveðja RP

3:34 e.h.

 
Blogger GHH sagði...

Guð forði þér frá umferðinni í DK. Ég var gráti næst fyrstu vikurnar - skildi ekki afhverju öllum var svona illa við MIG!

9:06 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

LOL

2:54 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home