BABABABA....
Ritgerðin er klár og búin að skila. Þetta hafðist. Vei vei vei!!! Djö.. skil ég samt vel að fólk fresti svona ritgerð einu sinni eða tvisvar, það er drulluerfitt að slíta sig frá þessu, alltaf hægt að laga og bæta, en svo var tekin harkan á þetta og nú er meistaraverkið innbundið og komið á skrifstofu lagadeildar.
Nú er ekkert nema próflestur næsta mánuðinn. Fyrsta próf þann 29. apríl þannig að það er ekki seinna vænna en að fara að byrja... En svo kemur Júróvisjón, sumarið, grillpartý, sumarkjólar, sýslumaðurinn og smá peningur í budduna (kannski nokkrar freknur). Þangað til eru það bara strigaskór, Magic, nullum crimen sine lege, nulla poena sine lege, rót og hettupeysa.
Kv. R

11 Comments:
Hehehe, sé þig alveg fyrir mér - í hettupeysu og strigaskóm og með rót dauðans :)
En þetta prófatímabil er sem betur fer yfirleitt fljótt að líða. Ó mæ god....sumarið framundan, ég fékk bara í magann þegar ég sá þessa upptalningu - Júróvisjón, grillpartí, sumarkjólar...sýslumaður ok fæ vissulega í magann þegar ég heyri á hann minnst en það er aðeins öðruvísi tilfinning :)
Við verðum að vera duglegar að viðra okkur á góðviðrisdögum í sumar. Kannski ég nái líka að kíkja á eins og eitt djamm fyrir lok sumars? Lofa engu :)
Knús og gangi þér vel við lesturinn, Þórunn.
7:57 e.h.
Til hamingju esskan mín að vera búin að skila ... þá er það frá og næst klikk tekur við :) .. svipað ástand á þessum bæ ;) ...
Dadda sú sem nennir alllls ekki að byrja að læra fyrir próf úps :S
11:26 e.h.
Takk elsku stelpur...
Það verða þokkalega nokkur pallapartý í sumar. Svo getum við flatmagað á pallinum og látið börnin hlaupa orkuna úr sér á meðan þ.e. þau börn sem geta hlaupið (eða öldruðu börnin).
R
8:30 f.h.
hehehe líst þokkalega vel á það mar.... 17 júní partý á pallinum ( uppá palli inní tjaldi útí fljóti vonandi skemmtið ykkur vel ) .. já sé það ég verð að koma með tjald og tjalda í garðinum .. alvöru útihátíð marr... ;)
11:13 e.h.
Þokkalega mar'!! Gert nágrannana alveg snar!! Rock on..
1:28 e.h.
hehe já mar.... það verður að fylgja svona útihátíð mar... :)
12:00 f.h.
Jæja skvís... hvernig gekk svo fyrsta prófið og hvenær er það næsta? Týpískt þetta veður sem skall á í lok síðustu viku, ég hugsaði með mér "já er prófatímabil núna" :) Maður man ekki eftir vorprófum öðruvísi en það sé Spánarveður úti.
Gangi þér vel,
Þórunn.
11:51 f.h.
Fyrsta prófið gekk bara helv. vel miðað við leti vetrarins...
He he var gott veður? Nei já ég sá út um gluggann að sólin skein... Annars náði ég nú heilum sunnudegi úti í garði í beðunum um helgina og lærði eiginlega ekkert, fékk meira að segja nokkrar freknur.. en nú er allt komið á fullt fyrir næsta próf sem er á mánudaginn n.k.
9:34 f.h.
Hehe heill dagur í garðvinnu - það er eitthvað svo fullorðins :)
Gott að gekk vel í prófinu og ég sendi þér góðan hráka fyrir það næsta!
Kveðja, Þórunn.
4:13 e.h.
Jæja! Ég hugsaði til þín í gær í bongóblíðunni - það eru augljós brot á mannréttindum að vera í prófi í svona veðri...eða hvað segir soon to be lögfræðingur um það?
Varðandi Jóa og Val þá er þetta bara pure business eins og hann segir og hann er sko ekki að fara að halda með þeim :) Hann er og verður víst alltaf skagamaður... lítið sem ég get gert í því, þegar þeir eru orðnir svona djúpt sokknir þá er ekki hægt að bjarga þeim... :)
Hvenær er svo næsta próf? (Bara svona að pæla hvenær ég má eiga von á næsta góðviðri)
Kveðja, Þórunn.
8:26 f.h.
Næsta próf er þann fimmtánda... já skemmtilegt það er alltaf/eða í bæði skiptin geggjað veður á prófdegi!! En ég náði þó smá sól í gær.
Jú þetta eru brot á mannréttindum - því miður er þessi píning vegna þess að maður velur hana sjálfur þannig að maður hefur ekki sterk rök gegn yfirvaldinu...snökt..
Kveðja RP
11:23 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home