Fimm ára!
Nú er "litli" drengurinn minn orðinn fimm ára og ef næstu fimm ár verða svona fljót að líða eins og þessi síðustu verður hann orðinn 10 ára áður en ég veit af. Afmælisdagurinn byrjaði með látum því að við foreldrarnir gáfum honum forláta "gettó-blaster" sem reyndist vera stórsniðugt því að þá gátum við kúrt aðeins lengur yfir einni sögu eða svo. Við dröttuðumst svo á fætur og tókum til eftir matarboðið sem við héldum í gær og svo tókum við sonurinn til við að baka pönnsur. Þar sem sykurbirgðir voru af skornum skammti og ekki til í heila uppskrift þá slumpuðum við bara einhverju í skál og út komu þessar fínu pönnukökur - og ég sem var að hugsa um að fara í húsmæðraskólann, það er greinilegt að ég þarf þess ekki... Restin af deginum fór í almenna leti. Seinni partinn tókum við okkur til og fórum í fermingarveislu hjá Einari Þorsteini frænda. Við fórum svo á "leigó" og tókum Harry Potter og vorum vakandi langt fram eftir enda voru sumir ansi þreyttir en þetta var afmælisósk Þorra að fá að horfa á vídeó og sofna fyrir framan sjónvarpið eins og unglingur. Amma og afi komu reyndar rétt áður en hann sofnaði með úr á "unglinginn" - alveg ekta úr og svo spil sem kennir á klukku.
Annars er nú formlega hafin prófatörn. Ritgerðin í yfirlestri og kannski smá tími til að rétt líta í námsbækurnar sem hafa beðið ansi lengi eftir því að vera opnaðar!!
Annars hef ég komist að því að ég á frekar erfitt með að blogga, þannig að þið verðið að fyrirgefa mér stopular færslur og formlegar. Skrifa þegar andinn kemur yfir mig, finnst betra að skrifa bara í stílabókina mína þar sem enginn sér... Kannski hentar mér betur að blogga ekki undir nafni þar sem ég er svo heft - veit það ekki??!!
Randó Lín

5 Comments:
Til hamingju með unglinginn þinn!!! Þetta líður alveg óóóótrúúúlega hratt. Ég man alltaf þegar við Manda vorum ca 12 ára og okkur lá alveg hrikalega mikið á að verða 20 ára þá sagði móðursystir hennar bitrum tóni: "þegar þið eruð orðnar tvítugar þá er hvert ár eins og einn mánuður fyrir ykkur". Við trúðum því tæplega sem þessi "gamla" kona sagði (hún var ekki orðin þrítug) en oft hef ég hugsað um þessi orð eftir að tíminn fór að fljúga svona hjá mér!
Nú byrjar "litla" stelpan mín í skóla í haust.....sem þýðir að "litli" strákurinn minn byrjar eftir tvö ár....hvar endar þetta eiginlega? Mér finnst ég nýbúin að eiga hann en var að fatta að það verða FJÖGUR ár á milli hans og þess sem fæðist nú í maí!!! Ja hérna...eins og þú sérð þá gæti ég haldið úti heila bloggsíðu um það hvað mér finnst tíminn líða hratt :) Þú hringir bara í mig ef þig vantar blogghugmyndir!!!
Gangi þér vel við lesturinn,
Þórunn.
1:08 e.h.
Já shit (afsakið), djö.. (afsakið) líður tíminn hratt!! Fjögur ár á milli he he það er mikið, Ólöf á ennþá metið með bilið á milli barna en við Guðný eigum nú eftir að slá það all-hressilega!! Barnið mitt verður komin á eftri ár þegar það fær loksins systikini - OMG!!!
Randó
4:03 e.h.
Já þessi tími líður alltof hratt... ég FERMI minn elsta eftir tvö ár .. eigum við að ræða þetta e-ð .. nei hélt ekki :)... þetta líður alltof hratt
kv Daddus
11:32 e.h.
Jæja og jæja....verður ritgerðinni skilað á réttum tíma í dag??? :)
12:11 e.h.
BA í höfn :)
6:22 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home