Úlfjótur er eðalnáungi....
Í kvöld ætla ég að dé joð a emm emm a!!! Við lögfræðipíur ætlum í móttöku á Borginni sem haldin er vegna þess að í dag er hátíðisdagur Úlfljóts - kannski að maður fái sér Sex and the City kokteil???
Við ætlum fyrst að hittast heima hjá "nágrannanum" Mæju Páls og fá okkur gott í gogginn. Mæja er nýkomin úr ævintýraferð frá Tælandi þar sem hún fór meðal annars á matreiðslunámskeið og sá ladyboys (ekki í sömu andránni, ímynda ég mér þó að þetta tvennt fari áreiðanlega ágætlega saman). En það er allavega spurning hvort að við skellum ekki svuntu á Mæs? Ef ekki þá eldar sendillinn bara! Svo skellum við okkur á Borgina í okkar fínasta pússi (ohhhh í hverju á ég að vera??? Hin eilífa andsk... spurning) og reynum kannski að standa aðeins upp frá barnum andstætt við það sem við gerum í fyrra (fliss). Mæju Kay ELSA verður sárt saknað en hún er svo busssy við ráðstefnuhöld og dinnerhöld með einhverju fínu Evrópudómstólsliði að hún kemst ekki - kannski bara og vonandi sjáum við hana í móttökunni.
Þetta verður sennilega síðasta djamm fyrir próflestur því að nú er bara allt að gerast! Þarf að skila 4 verkefnum/ritgerðum í nóvember og svo er fyrsta prófið 5. des en próftaflan mín lítur svona út:
5. des (International Environmental Law I)
11. des (Verktaka- og útboðsréttur)
13. des. (Ofbeldisbrot frá sjónarhóli kvennaréttar)
15. des. (Vinnumarkaðsréttur)
en þá er ég líka búin 15. des. Hvað ég á að gera þá veit ég ekki. Er ekki vön því að vera búin svona snemma og langar til að gera svo margt - er svo gráðug. Langar í jólatívolí í Köben eða vera heima að taka til og baka!!! Æ svo hefur maður allt lífið til að taka til og baka iss held að Vodafone herferðin sé að ná til mín - NOW!!! Gera eitthvað spennandi í staðinn fyrir að sótthreinsa - jamm held það sé málið! Tek kannski eina sort með barnunganum sem elskar eldhússtörfin....
Kveðja Randa sem er að fara á rand....

10 Comments:
Tíhíhíhí ég verð svo spennt þegar ég sé blogg hjá þér...þetta er svona eins og að finna fjögurra blaða smára...sjaldgæft og ánægjulegt :)
Ég verð nú samt aðeins að ræða þessa staðhæfingu með síðasta djamm fyrir próf!!! Hvað með 25.nóvember? Manstu, við ætluðum að skera drykkfelldu tána af daginn eftir?
Skemmtu þér nú vel í kvöld mín kæra
Löv, Þórunn
11:48 f.h.
Hmmmm já maður - var næstum (ég segi næstum) búin að gleyma því - önnur táin skal það vera!!! Early party var það ekki? Ætti að geta swingað bæ sko ef ég er ekki algjör aumingi sem ég er ekki þannig að já partý 25. nóv. Veiii næst síðasta djamm - gott að hafa svona gulrót - vei vei vei!!!
Kv. Hún sjálfur
12:18 e.h.
Svo þegar táin er vaxin aftur þá er bara um að gera að skella sér til Árósa svo þú getir losað þig við hana sem fyrst aftur ...
Sounds like a plan or sounds like a plan????
2:31 e.h.
Þokkalegt plan maður!
Ragna þú ert rík af skipulagssjúkum vinkonum, hættu að reyna að ráða eigin lífi og láttu þig bara fljóta með......
3:27 e.h.
Heyrðu kona góð ég er með fína hugmynd eftir prófin :)
AFMÆLI HJÁ MÉR 16 des :)
kv Dadda
8:37 e.h.
Já maður!!! Elska ykkur skipulagssjúku vinkonur! Ég ætla aldrei að plana neitt aftur í lífinu - læt ykkur hér með um þetta. Þið verðið bara svona life-coaches eða hvað þetta nú heitir í Hollywood og þið megið kalla mig Rögnu Jolie-Pitt.
Partý/Þórunn - 4 x próf - partý/ammæli - jólafrí.
Og ég get alveg lofað því að þið veriðið sko ekki lausar við mig þarna í Árósum, nýbúarnir ykkar;)
Ká enn ú ess, Ragna J.P.
10:07 f.h.
Jæja fröken, bloggar þú bara einu sinni í mánuði eða....????
5:23 e.h.
He he já og er það ekki bara góð regla? Ég blogga einu sinni í mánuði en þú einu sinni á dag? Díll...
RandaLín lata bloggstúlkan
6:18 e.h.
Já já, það er alveg sanngjarnt á meðan ég er í fæðingarorlofi! En þú veist...eftir áramót þegar ég sest á skólabekk líka þá verðum við að deila ábyrgðinni...díll?
Þórunn ofvirki bloggarinn
9:19 e.h.
Díll!!!
;)
8:01 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home