Nýtt líf.....(fögur fyrirheit)
Á morgun skal ég læra eins og enginn hefur lært áður. Ástæðan er einföld! Í dag fæ ég nýja tölvu. Ég stend nefnilega í þeirri trú að þessi veraldlegur hlutur geti bjargað mér frá eilífri leti. Undarlegt hvað maður getur endalaust blekkt sjálfan sig: eftir að ég fæ tölvuna get ég byrjað, verð ógeðslega dugleg þegar ég kem heim frá Árósum, æ sef út núna og svo aldrei aftur o.s.frv. Annars er tilefni þessara tölvukaupa það að tryggingafélagið VÍS hefur greitt mér þá gömlu sem var dæmd ónýt eftir ýmis áföll sem heimilistryggingin dekkaði og því höfum við fest kaup á nýrri ASUS tölvu frá Boðeind - eðalgripur alveg hreint og með vefmyndavél þannig að elskulegar "skandinavískar" og íslenskar vinkonur mínar geta séð mína fögru ásjónu í gegnum MSNið. Eru þið ekki farnar að hlakka til? (Ekki það að ég ætli eitthvað að fara að hanga á MSN allan daginn þar sem ég verð svo ægilega upptekin við hið nýja lærdómslíf....eða sko þannig...)
Kveðjur og svo framvegis, Ragna lata bloggstúlkan

4 Comments:
oohhhh hvað ég hlakka til að sjá þig í vefmyndavélinni fallega vinkona..... gangi þér vel með lærdóminn í nýju tölvunni :)
á nú örugglega eitthvað eftir að sjá þig á msn samt, hef svona smá grun um að þú munir læðast þangað annað slagið ;)
kveðja
frá Stockholm
6:45 e.h.
Vá hvað ég veit hvað þú ert að tala um ..... ég er einmitt nýkomin með nýja tölvu og þá hugsa ég "vá hvað ég á eftir að glósa mikið á þig krúttlega tölva "hehehe og vá hvað ég ætla að læra mikið ....en veistu uuuuuuuu æj ekki mikið breyst sko :S.... en núna er massa átak í gangi í lærdóm og það er bara að virka helv..vel enda rétt 6 vikur eftir í kennslu ... ó shit !!
En við ERUM massa duglegar Ragna .!!!
kv Dadda mágkona ;)
11:48 e.h.
Jáhá þokkalega duglegar ;)
RP
12:50 e.h.
Ertu svona hrikalega upptekin við að lifa hinu nýja lífi?
BLOGG NÚNA TAKK!!!
Kveðja, Þórunn
11:46 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home