BA-brjálæði...
Vinnuskjöl stjórnvalda eru undanþegin upplýsingarétti skv. 3. tl. 4. gr. upplýsingalaganna nr. 50/1996. Þau eru samt ekki undanþegin aðgangi ef þau hafa að geyma endanlega ákvörðun stjórnvalds eða upplýsingar sem ekki verður aflað annars staðar frá... Undantekningarnar í 4. gr. eru undantekningar á meginreglunni. Um þetta er ég að skrifa 15 - 25 blaðsíður. 10 síður komnar 5 - 15 blaðsíður to go. Undarlegustu hlutir verða áhugaverðir þegar maður bara fer að skoða þá! T.d. finnst mér fátt skemmtilegra þessa dagana en að lesa úrskurði úrskurðanefndar upplýsingamála aftur og aftur og aftur og stöðugt uppgvöta eitthvað nýtt.
Lögfræðin í hnotskurn - undantekning á meginreglunni og undantekning frá undantekningunni - ekkert "svona-er-reglan-punktur"... endalausar pælingar um hin minnstu smáatriði. Nú kemur smámunasemin í góðar þarfir!!
Kv. BArbamamma
P.s. mér er það lífsins ómögulegt að skrifa um eitthvað annað en efnið sem hefur átt hug minn allan síðustu vikur enda takmörkuð með eindæmum.

7 Comments:
Það er nú samt alltaf skemmtilegt að lesa bloggið þitt :)
Ég komst alveg í gullnámu í fyrradag þegar ég mundi að þú værir með blogg - það var nóg fyrir þig að skreppa í frí til Kanarí og ég bara gleymdi þér....
En ég gat semsagt skemmt mér við að lesa yfir allt sem þú hafðir skrifað :)
Knús, Þórunn.
5:57 e.h.
He he gott!!
Knús back at you..
RP
6:13 e.h.
Hva....ákvaðstu bara að hætta á toppinum??? :)
Ekkert blogg í marga marga daga, það mætti halda að þú hefðir eitthvað að gera?
Hlakka til að sjá þig á föstudaginn mín kæra, kv. Þórunn.
9:04 e.h.
Uhhh það er einmitt meinið - það er ekkert að gerast, buhuhu. En hef hugsað mér að blogga um bumbur eftir föstudaginn... Gerir þú þér grein fyrir að við erum 5 sem ætlum að hittast og 3 eru óléttar og 4 börn á leiðinni - er'etta ekki aðeins of mikið?? Hugsaðu þér þetta reiknaði ég í huganum án þess að nota reiknivél!!!
Ragna rosi
9:43 f.h.
Hehehe já mér finnst þetta frekar fyndið!!! Ég fattaði þetta einmitt í dag í vinnunni og fór að hlæja upphátt eins og svo oft þegar fattarinn fer óvænt í gang.
Við verðum semsagt fimm annað kvöld en erum í raun og veru níu....creeeeepy! Ég notaði reiknivél í þetta enda langt síðan ég útskrifaðist úr viðskiptafræðinni og farin að gleyma formúlum eins og plús og mínus.
Hlakkkkkka rooosalega mikið til að sjá þig á morgun, Þórunn.
8:33 e.h.
Hæ Ragnuz
Hlakka ekekrt smá til að hitta þig næstu helgi, kokteilar, bjór, sígó, trúnó.... vá get ekki beðið :)
Ps. Hvernig væri að fara að byrja á skeytasendingunum aftur??? eða eru allir vinir okkar horfnir bara? (þú veist hvaða vini ég er að tala um er það ekki??)
7:23 e.h.
Hellú ... ertu bara hætt að blogga eða ...þið talið svo mikið um djamm hérna, þannig ég segi bara Ranga við þurfum að fara að kíkja á djammið saman ;)
kv Dadda
8:52 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home