Pillows

þriðjudagur, mars 07, 2006

Jæja, jæja...

nú er ég búin að skila ófullbúnum fullbúnum drögum upp á tæpar 17 bls. Veit ekki hversu mikinn húmor leiðbeinandinn minn hefur fyrir öllum athugasemdunum mínum og spurningunum sem ég fléttaði inn í þau... en þetta er í það minnsta búið í bili. Smá breik til að byrja að lesa fyrir refsirétt, kröfurétt og réttarfar já og lagadönskuna sem er náttúrulega ótrúlega skemmtileg (í alvöru)!!! Nóg um skólann - ekki beint intressant blogg-efni.

Ég átti aftur á móti geysilega skemmtilega helgi sem fól í sér engan lærdóm sem er tilbreyting. Á föstudaginn fór ég í óléttu-/innflutnings-/veislu-boð.. Hún Þórunn stórvinkona mín er flutt í Reykjavík- sem eru reyndar dálítil svik við Kópavog en ég fyrirgef henni það þar sem hún flutti nú ekki langt. Hjá Þórunni voru þrjár óléttar píur og svo ég og Berglind Eva. Þær eru sem sagt frjósamar sem fyrr þessar vinkonur mínar og það eru meira að segja á leiðinni tvíburar!! Mér finnst það alveg stórmerkilegt fyrir utan það hvað það er yfirhöfuð merkilegt að geta bara búið til eitt stykki barn!! OMG segi ég nú bara.. verð eiginlega að skella inn mynd af ólétta-genginu bráðlega eða eftir því sem letin leyfir... Ekki spillti heldur fyrir að fá góðar veitingar í návist allra þessara ófæddu barna en Þórunn sú myndarlega stúlka var búin að skella í eina blauta súkkulaðiköku og gera beikon-brauð-epla-bita sem er það besta sem hér á jörðu fæst.

Á laugardaginn skelltum við skötuhjúin okkur í partý hjá Berglindi Helgu. Þetta var Buzz-partý með meiru. Geggjað stuð og Randa Panda sem hefur ekki verið þekkt fyrir áhuga sinn á popptónlist fékk fyrir einskæra heppni hæsta skor kvöldsins. Ég held því fram og mun halda því fram að ég sé gædd yfirnáttúrulegum giskhæfileikum með heppnisívafi enda hef ég átt ótrúlega spretti í t.d. spilum eins og Popppunkti... og þeir sem þekkja mig vita að ég á enga diska með Birgittu eða Britney eða aðra diska yfirhöfuð nema þessa sem ég fékk í fermingargjöf. En nú er ég hrædd um að ég sé forever búin að jinxa þessari heppni minni með því að játa þetta opinberlega. Nei segi það ekki að ég hlusti aldrei á tónlist og hafi ekkert gaman af henni - ég bara kaupi ekki diska (og downloada ekki heldur). Hef meira gaman af því að láta koma mér á óvart og hlusta bara á útvarpið......

Kveðja hin "LAGLEGA" R.P.
(nánari útskýringar á laglegri Rögnu fást hjá Villa hennar Ólafar)

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Jæja góða úr því þú ert búin með fullbúnu drögin (skil ekki hvernig drög eru fullbúin) en allavega úr því það er frá þá ert þú að koma með okkur djammeríið um helgina ehaggi :)
kv Dadda padda

11:18 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

nei Ragna er að koma með mér á djammið um helgina erþaðekki?? hehe bara rifist um þig ;)
Get allavega ekki beðið eftir að koma heim!!
kveðja
Anna Blinda

5:04 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home