Pillows

þriðjudagur, mars 14, 2006

Meistari Jakob (gamli)

Í haust byrja ég í meistaranámi.... OMG það er eitthvað svo fullorðins (segi ég háöldruð manneskjan - er ekki með neina komplexa sko). Ég byrja sem sagt í haust ef að allt gengur að óskum í vor!! Þá get ég farið að læra skemmtileg fög eins og t.d. verktaka- og útboðsrétt, evrópurétt, ofbeldisbrot frá sjónarhóli kvennaréttar, fullnusturétt og allt um EU Directives on Data Protection and Individual Rights in Health Sector Research o.fl. o.fl.

En um helgina aftur á móti fór ég á skrall með Önnu Lindu Næseril sem að kom sérstaklega til Íslands um helgina til þess að hitta okkur vinkonurnar. Þetta var ljúft en var komin heim um hálf-fjögur (eitthvað er maður (den gamle) nú farinn að daprast en er alls ekki með komplexa yfir aldrinum í alvöru!!). En það var gaman að hitta Önnu Lindu sem hefur gefið mér loforð um að flytja aftur heim í sumar (eða ég fékk hana til þess eftir "tvö" glös).

R.P (eða Randa í sviga)

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

(já gott að þú skemmtir þér á djamminu, þegar þú gleymdir að láta mig vita svo við gætum hist)...(en erfi þetta ekkert við þig gamla kona)(varst nokkuð með komplexa yfir aldrinum ) (hehehehe) bara varð að setja allt í sviga heheh kv Dadda

11:25 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

hehe það er sko alveg pottþétt að ég kem heim í sumar,
fann það alveg þegar ég var heima síðustu helgi að ég er algjör Íslendingur og sakna ykkar hryllilega mikið!!

Fyrir utan það hvað svíar eru leiðinlegir!!
Og svo vil ég ekki missa af síðasta árinu hans Þorra litla á Marbakka :)

Það var alvega ógó gaman að hitta þig skvísí, það sem við drukkum af kokteilum ;) Á ennþá fullt eftir, klárum það næst þegar ég kem (skál!)

sjáumst sæta

Annie

10:12 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home