Pillows

sunnudagur, mars 19, 2006

Hjartsláttur...

Afkvæmið indæla varð svo veikt á föstudaginn. Mér stóð nú eiginlega ekki á sama þegar ég sótti hann á leikskólann eftir símhringingu frá þeim, enda var hann allur einhvern veginn máttlaus og brennandi heitur. Hann hafði orðið veikur eftir hádegið og byrjaði að kvarta undan verkjum í eyrunum. Mér brást tilfinningin núna - ég vissi einhvern veginn ekkert hvort að þetta væri eitthvað til að hafa áhyggjur af eða ekki. En þegar við komum út í bíl varð ég svolítið hrædd því að hann byrjaði að æpa af kvölum. Við brunuðum upp á heilsugæslu þar sem hjúkrunarfræðingur tók á móti okkur - indæl kona sem að kom heim þegar Þorri var nýfæddur. Hún sagði okkur að fara bara strax upp á spítala enda hefur hún sennilega séð skelfingarsvipinn á mér með máttlaust barnið í fanginu. Hún spurði einmitt hvort ég þekkti ekki mitt barn og ég svaraði að sjálfsögðu játandi enda var þetta ekki eðlilegt fyrir hrausta drenginn minn sem eiginlega aldrei fær hita - man ekki einu sinni hvenær ég mældi hann síðast, það eru áreiðanlega tvö ár síðan í fullri alvöru. Hún var svo góð að hringja á undan okkur niður á spítala. Nú upphófst erfið bílferð því að Þorri öskraði enn meira en áður og var við það að lognast út af þess á milli. Ég þorði ekki öðru en að halda honum vakandi. Þegar við komum á spítalann fórum við strax inn. Þegar ég var að ganga inn fann ég hvernig hann alveg snarkólnaði og einhvern veginn fékk kraftinn aftur. Pabbi hans kom úr vinnunni enda vorum við foreldrarnir, orðin dáltítið stressuð. Þegar við komum svo inn á skoðunarherbergi var hann orðinn miklu rólegri og hressari, leyfði hjúkrunarfræðingnum að mæla blóðþrýstinginn og var meira að segja að gera gamni sínu við hana. Svo mældi ég hann og hann var hitalaus - ótrúlega skrýtið. Læknirinn vildi samt halda honum aðeins og honum voru gefin verkjalyf. Við fjölskyldan biðum þarna í einhvern smátíma og Þorri sofnaði. Hann var svo bara orðinn hress þegar hann vaknaði og ekki að sjá að hann hefði eitthvað verið veikur....

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

æi lillinn, knús knús til hans!!

9:30 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Já úff .. ég varð nú pínu smeyk þegar ég heyrði þetta :S... en sem betur fer er hann nagli og þetta fór vel :)
kv Dadda padda

9:52 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Vá en furðulegt! Hann hefur bara verið að tékka viðbrögðin...hehehehe.

En án gríns, er hann búinn að vera lasinn eða er hann bara frískur?

Kv. Þórunn.

2:35 e.h.

 
Blogger GHH sagði...

Þetta er alveg týpískt...

...svo sitjum við eftir með rauðan stimpil á enninu: MÓÐURSJÚKA MAMMAN!

3:16 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

NKL!!! Ég afsakaði mig í gríð og erg en læknirinn var svo ágætur og lét mér líða vel með þetta allt saman..

En annars er hann alveg hress - með smá hósta sem hann hafði áður en fékk þennan eyrnaverk. Við höfðum hann samt heima í gær og aftur í dag til öryggissss...

Randó

8:40 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home