Twins...
Nú fæ ég að sjá alvörunni tvíbura vonandi í næstu viku!!! Ég hef aldrei séð nýja tvíbura - bara gamla þannig að þetta verður algerlega ný upplifun. Ólöf Ingunn og Villi eignuðust sem sagt tvo stráka á mánudaginn. Svo talaði ég við Þórunni í gær sem ætlar að eignast stelpu þann 15. maí. þannig að það verður nóg að gera hjá mér að knúsa smábörn næstu mánuðina og út árið því að Guðrún Ása ætlar líka að eignast barn í sumar. Mig dreymdi sem sagt barnsfæðingar í nótt!!
Randó

5 Comments:
viltu skila kveðju til Ólafar og Villa frá mér??
og svo færð þú auðvitað kveðju líka ofur skvísa :)
hvernig hefur Þorri litli það annars?
8:51 e.h.
Hehe, ég ætti kannski að hætta að segja fólki að ég ætli að eiga 15.maí? Það verður frekar vandræðalegt að taka við símtölum frá fólki eftir þann tíma og útskýra að fræðilega séð sé ég ekki að ganga fram yfir því ég hafi ekki verið sett fyrr en 26.maí.....ég hafi bara ákveðið að eiga 15.maí??? :)
Annars óska ég líka Ólöfu og Villa innilega til hamingju með strákana tvo og hlakka hrikalega mikið til að sjá þá...sem fyrst....
Kveðja, Þórunn.
10:10 e.h.
He he Þórunn þú ert svo skipulögð. Ég hef fulla trú á 15. maí - hugsa ekki einu sinni um hina dagsetninguna (fyrr en eftir 15. maí ef engin stúlka er komin þá). Annars er 1. júní líka doldið hugguleg dagsetning, svona til að byrja sumarið með stæl...
Anna.. Þorrinn þinn er hress og kominn á leikskólann og er orðinn Idol-sjúkur. Veit ekki hvort að Idol-nammið hefur eitthvað með það að gera eða hvort þetta er bara einlægur tónlistaráhugi barnsins??
Kv. hún sjálf
10:20 e.h.
... þetta er bara í family-unni það að elska idol-ið :)... fyrir utan pabba hans :)
en já innilegar hamingju óskir Villi og Ólöf... gangi ykkur sem allra best :)
kv Dadda
9:23 f.h.
Ha ha síðasta vígið er nefnilega fallið því Gamli er farinn að horfa á Idolið - hann er meira spenntur fyrir þessu en ég!!!
R
9:38 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home