Pillows

mánudagur, mars 26, 2007

Maraþon-helgi

Helgin og rúmlega það fór í að semja eitt stykki minnisblað í námskeiðinu Stjórnsýsluréttur III og frábært matarboð hjá MG. Maður ætlaði nú að vera penn og fara heim bara svona um miðnætti en "when you're having fun" o.s.frv. Maturinn var stórgóður, sömuleiðis eftirrétturinn og félagsskapurinn. Matarboðið og eftirleikurinn var alveg þess virði að vera til klukkan þrjú í nótt að klára minnisblaðið og svo er alltaf dálítið fjör að vera undir smá pressu á lesstofunni ásamt öðrum sveittum laganemum. Svo hitti ég líka Bellu gellu niðri í bæ og það er alltaf gaman.
Nú tekur við hálfs dags aflslappelsi og svo tekur við ritgerðarsmíð í Mati á umhverfisáhrifum sem á að skila um mánaðarmótin og þá er bara eitt verkefni eftir í Skuldaskilarétti. Eftir það koma svo páskar og stórafmæli "litla prinsins" (MP þessi var bara fyrir þig hehehe).

Kveðja, Pelgan

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

MG, MP..... hvað ertu að tala um mín kæra? Ertu orðinn meðlimur í einhverju leynifélagi sem enginn má vita af???? Eða er raunin sú að allir vinir þínir eru fluttir til útlanda og þú ert farin að búa þér til vini?????????......... ;)

Kv. ÞR

6:52 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

LOL já... MP og MG og MK og fleiri eru náttla bara tilbúningur einn - eitthvað þarf maður við að vera fyrst að helmingurinn af vinum manns flýja land (hnuuusss)- en ég hef sem betur fer með gott ímyndunarafl enda hér um eðalpersónur að ræða:

MP = Mæja Páls (Sigurðar eða Hreins faðernið er ekki á hreinu)
MK = Mæja Kára (í jötunmóð)
MG = Frú Margrét (hennar Halldóru)
BHJ = Beggi litli (erasmusúlli)

Held að þetta ættu að vera lykillinn að helstu skammtstöfunum hér á þessari síðu enn sem komið er... Læt vita ef ég bý til fleiri vini..

Kv. Errrrrr Pééééééée

11:38 f.h.

 
Blogger Mæja tæja sagði...

hahaha allt í lagi RP Þorri bauð mér í afmælið sitt í nóvember þannig að ég er mjög spennt fyrir prinsa afmælinu :-)
Dúlli dúll
MP kisulóra

2:50 e.h.

 
Blogger Unknown sagði...

Margrét hennar Halldóru HAHAHAHAHAHAHHHHHHHHHHHHHHH

8:50 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home