Lokuð frá heiminum...
.. í bókstaflegri merkingu. Ég sit á Lögbergi hitti alltaf sama fólkið dag eftir dag (sem betur fer er það ágætt þetta fólk). Vinnuvélarnar fyrir utan hamast við að byggja Háskólatorg en eyrnatappar og Peltor "eyrnaskjól" bjarga því sem bjargað verður. Ég var í prófi númer tvö í gær og mér til mikillar furðu mundi ég heila beinagrind um viðtökudrátt og gvöð sé lof fyrir það því spurningin gilti 40% og nota bene þetta var allur kaflinn í bókinni - smart? Ég sem legg aldrei áherslu á beinagrindur nema svona helstu atriði - nei ég meina er ekki heldur ósmart að læra heila beinagrind um þýðingu huglægrar afstöðu þess sem vanefnir þar sem m.a. eitt undiratriðið er sjálfstætt starfandi háskólamenn - myndi maður ekki ætla að almennt tjitt tjatt væri nóg í stað þess að þylja þetta upp eins og api??? Þær síast nú inn blessaðar þrátt fyrir allt þar sem ég man þessa beinagrind reyndar þó að fyrningin sé hafin. Ég var sem sagt í prófi í Kröfurétti II - skemmtilegt fag og praktískt vænti ég en ekkert einasta raunhæft verkefni hvorki í vetur né á prófinu, þetta finnst mér ennþá pínu skrýtið þó að maður sé svo sem búinn að sætta sig við að þessu verður seint breytt. Ég geri mér svo sem grein fyrir að ég er í akademísku námi, en hvað (?), myndi eitt raunhæft verkefni drepa mann, nei ég bara spyr!! Sem betur fer eru flestir kennararnir ágætir og þá sérstaklega BB sem er ekkert að stressa sig á hlutunum.
Ég hlakka í það minnsta til að fara í refsiréttinn minn því þar fæ ég í það minnsta raunhæft verkefni, það bregst ekki og þau eru skemmtileg þó að málavaxtalýsingarnar séu frekar blóðugar og ógeðslegar (og svo leysir maður þessi verkefni um hrottalegar nauðganir og morð án þess blikka öðru auganu ).
Jæja eftir góðan afslöppunardag í gær á að hella sér beint í samþættingaraðferð og sundurgreiningaraðferð / högg sem geigar, en beinagrind dagsins í gær var nokkurn veginn á þessa leið:
1. Vídeóleigan Hvammsval
1.1. In her shoes
1.2. Ein gömul
2. Heim
2.1. Samloka og kristall úti á palli
2.2. Blöðin úti á palli
2.3. Sól = freknur
3. Vídeó-gláp nr. 1
3.1. Horfði á þá gömlu
3.2. Dottaði
4. Drengurinn minn fríði kom heim
4.1. Skítugur upp fyrir haus af leikskólanum (þetta er frekar langt atriði og erfitt að muna og gott að stytta það í einfaldlega "skítugur")
4.2. Sofnaði með mömmu sinni
5. Heimilisstörf
5.1. Í vélina
5.2. Ryksuga forstofu
6. Baðtími og háttatími (oft erfitt þegar er svona tvö atriði í sömu fyrirsögn en sleppur)
6.1. Skítugi drengurinn baðaður
6.2. Hreini drengurinn í rúmið
7. Vídeó-gláp nr. 2
7.1. Ma og pa
7.2. Ís úr Hvammsvali í boði pa
8. Sofa - allt of seint
(undir þessu atriði man ég ekkert - skelfing..)
Kveðja
Skeletor (ha ha The power of Greyskull...)
