Pillows

miðvikudagur, janúar 31, 2007

Mér að kenna að við töpuðum leiknum í gær!!!


Ég var svo viss um sigur en ástæðan er einföld, við höfum unnið alla leikina sem ég hef horft á, ég horfði á þennan, ergo: við áttum að vinna. Eitthvað klikkaði þarna - kannski af því að ég skrapp frá í 10 mínútur til að taka saman eitt stykki bílabraut!! Það hlýtur að vera ástæðan því strákarnir stóðu sig vel. Ég kenni því samviskusemi húsmóðurinnar um tapið í gær!

Annars hef ég aldrei, aldrei æpt svona yfir einum leik og ég bið hér með nágranna mína afsökunar *roðn*!

Kv. Ragna Íslendingur

P.s. myndin er alls ótengd efni þessarar færslu en er nátengd efni síðasta föstudagskvelds ho ho ho ho You're poison...