Úlfjótur er eðalnáungi....
Í kvöld ætla ég að dé joð a emm emm a!!! Við lögfræðipíur ætlum í móttöku á Borginni sem haldin er vegna þess að í dag er hátíðisdagur Úlfljóts - kannski að maður fái sér Sex and the City kokteil???
Við ætlum fyrst að hittast heima hjá "nágrannanum" Mæju Páls og fá okkur gott í gogginn. Mæja er nýkomin úr ævintýraferð frá Tælandi þar sem hún fór meðal annars á matreiðslunámskeið og sá ladyboys (ekki í sömu andránni, ímynda ég mér þó að þetta tvennt fari áreiðanlega ágætlega saman). En það er allavega spurning hvort að við skellum ekki svuntu á Mæs? Ef ekki þá eldar sendillinn bara! Svo skellum við okkur á Borgina í okkar fínasta pússi (ohhhh í hverju á ég að vera??? Hin eilífa andsk... spurning) og reynum kannski að standa aðeins upp frá barnum andstætt við það sem við gerum í fyrra (fliss). Mæju Kay ELSA verður sárt saknað en hún er svo busssy við ráðstefnuhöld og dinnerhöld með einhverju fínu Evrópudómstólsliði að hún kemst ekki - kannski bara og vonandi sjáum við hana í móttökunni.
Þetta verður sennilega síðasta djamm fyrir próflestur því að nú er bara allt að gerast! Þarf að skila 4 verkefnum/ritgerðum í nóvember og svo er fyrsta prófið 5. des en próftaflan mín lítur svona út:
5. des (International Environmental Law I)
11. des (Verktaka- og útboðsréttur)
13. des. (Ofbeldisbrot frá sjónarhóli kvennaréttar)
15. des. (Vinnumarkaðsréttur)
en þá er ég líka búin 15. des. Hvað ég á að gera þá veit ég ekki. Er ekki vön því að vera búin svona snemma og langar til að gera svo margt - er svo gráðug. Langar í jólatívolí í Köben eða vera heima að taka til og baka!!! Æ svo hefur maður allt lífið til að taka til og baka iss held að Vodafone herferðin sé að ná til mín - NOW!!! Gera eitthvað spennandi í staðinn fyrir að sótthreinsa - jamm held það sé málið! Tek kannski eina sort með barnunganum sem elskar eldhússtörfin....
Kveðja Randa sem er að fara á rand....
