BABABABA....
Ritgerðin er klár og búin að skila. Þetta hafðist. Vei vei vei!!! Djö.. skil ég samt vel að fólk fresti svona ritgerð einu sinni eða tvisvar, það er drulluerfitt að slíta sig frá þessu, alltaf hægt að laga og bæta, en svo var tekin harkan á þetta og nú er meistaraverkið innbundið og komið á skrifstofu lagadeildar.
Nú er ekkert nema próflestur næsta mánuðinn. Fyrsta próf þann 29. apríl þannig að það er ekki seinna vænna en að fara að byrja... En svo kemur Júróvisjón, sumarið, grillpartý, sumarkjólar, sýslumaðurinn og smá peningur í budduna (kannski nokkrar freknur). Þangað til eru það bara strigaskór, Magic, nullum crimen sine lege, nulla poena sine lege, rót og hettupeysa.
Kv. R
