Pillows

sunnudagur, janúar 22, 2006

Holtið...

.. er virkilega barnvænn staður. Var pínu búin að kvíða því að fara með soninn-næstum-því-fimm-ára á sjálft Holtið en það gekk svona glimmrandi vel. Drengurinn var prúður og stilltur og það hjálpaði gríðarlega að þjónustan við hann var alveg súper. Þeir hafa greinilega fengið börn í heimsókn áður en það virðist ekki alltaf vera tilfellið þegar maður fer svona út að borða. Við byrjuðum á að setjast inn á bar í fordrykk. Hans hátign pantaði sér mjólk á barnum eins og hann hafi aldrei gert annað annað. Settumst svo inn og þar beið hans "hásæti" við borðið. Hann fékk svo fisk (fínasta karfa að ég held) sem hann nartaði svona rétt í enda að spara pláss fyrir súkkulaðikökuna sem búið var að múta honum með :) Svo settumst við aftur inn á bar eftir mat og þar sofnaði hann! Ekki margir sem sofna á barnum á Holtinu ímynda ég mér. Við fullorðna fólkið vorum heldur ekki illa haldin enda maturinn gríðarlega góður - með því betra sem mann fær sko - slurp og slef... og það er greinilegt að það er einhver sérlegur eftiréttameistari þarna (en ég ber mikið skynbragð á hin ýmsu sætindi - mætti segja að sætindi og eftirréttir séu fyrir mér eins og vínið fyrir vínáhugamanninn he hemm..).

Í gær fórum við foreldrar svo aðeins út á lífið... Afi P og drengurinn höfðu það gott yfir "Staugstofunni" á meðan. Núna á sunnudegi er sannkallað letilíf, pabbi að leggja sig, drengur í PS2 (bændurnir á heimilinu fengu hana í bóndadagsgjöf) og mamman að surfa (en þyrfti að vera að læra *andvarp*)

K&K, ErrPa

föstudagur, janúar 20, 2006

Furðulegt...

.. að ég skuli vera meyja. Sögurnar segja að þær séu alveg ofur-skipulagðar en ég vil ekki endilega kannast við það! Erum að fara út á þriðjudaginn og ég ætlaði að vera búin að: taka til heima, þvo hvert einasta snifsi sem í óhreina tauinu er, vera komin svo miklu, miklu lengra með ritgerðina og heimildalestur, plokka og lita augnabrúnir, kaupa bikiní, sólarvörn o.s.frv. Þetta ætlaði ég að vera búin að gera og fleira til fyrir helgi svo ég gæti nú "slappað" af um helgina því hún verður annasöm (út að borða á föstudag og þorrablót á laugardag). Svo veit ég varla hvenær við fljúgum út á þriðjudag og hvernig við förum út á flugvöll - læt Gamla Mund bara um það að sjá um svoleiðis smáatriði. Veit um tvær sem væru nú alveg með þetta á hreinu (blikk, blikk girlfriends-in mín með skipulagsáráttuna á háu stigi - kannist þið við ykkur?). Reyndar verð ég að viðurkenna að ég er búin að skipuleggja í þaula hvað ég ætla að KAUPA (fallegur listi í mörgum litum).
Meyjur eru líka smámunasamar (þó það sé sykurhúðað í blessuðum stjörnuspánum) en það kannast ég betur við. Ætlaði að skúra forstofuna í gær - endaði með því að ég "þurfti" að þvo veggina, gereftin, loftið og útidyrahurðina líka og ekki nóg með það heldur líka hvern og einn einasta skó. Svo þegar það var búið ætlaði ég "aðeins" að stjúka yfir hilluna í fatahenginu en það endaði í endemis vitleysu og nota bene skipulagningu hinna ýmsu trefla og vettlinga (hmm er ég búin að hrekja þá fullyrðingu mína að ég sé ekki haldin skipulagsáráttu). Gat ekki hætt!!
Hef komist að því að jafnt og þétt álag hentar mér ekki eins vel og að taka'etta bara í skorpum - dugleg einn daginn en endalaust löt hinn daginn - eða er þetta frestunarárátta?

Kv. R. Panda

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Erfitt að blogga...

.. þegar maður gerir ekkert allan daginn annað en að hanga uppi í skóla. Niðurtalning fyrir Kanaríferð er reyndar hafin því að við förum út eftir viku þ.e. á þriðjudaginn næsta. Hmm mar' ætti kannski að fara að kíkja á sumarfötin, þvo og græja?

Einn BA fundur búinn - kom bara vel út. Ekkert vesen að fara út til Kanarí í tvær vikur - fæ bara smá svigrúm með skilin á drögunum að ritgerðinni.

Andleysi = bloggleysi,
búin að loka bókunum og farin heim,
Kv. Mútter

föstudagur, janúar 13, 2006

Ennþá meiri hamingja...

..þetta hafðist allt saman. Síðasta prófið fór langbezt og allt í lukkunnar velstandi hér á þessum bæ - hefði satt best að segja ekki getað farið betur (ja nema ég hefði lagt allan minn tíma í lærdóm og engan í mig og mína sem er ekki tilgangurinn með lífinu hef ég komist að eftir lestur margra sjálfshjálparbóka - segir sú sem á eina, sem reyndar var lesin og sú var ekki góð skal ég segja ykkur en það er annar handleggur..). Lánin í höfn og afsláttur af leikskólagjöldum einnig. Annars er þetta alveg frábært hjá Kópavogsbæ sko - maður þarf að skila vottorði frá skólanum um að maður hafi staðist prófin á haustönninni og sé skráður í nám en ekkert svoleiðis vottorð er til hjá háskólanum. Fékk bara prentaðan lista yfir allan námsferilinn (kemur Kóp.bæ. auðvitað ekkert við) en fékk náðarsamlegast að fá fellt út fallið mitt og einkunnirnar enda er friðhelgi einkalífsins mér afar hugleikið verandi í þessu námi sem ég er í! Meðaleinkunnin varð reyndar eftir og ég af hugsjón, auðvitað, strikaði hana út með svörtu tússi! Hélt einhvern veginn að ég myndi svo bara fá pening í hendurnar fyrir, en nei nú sko verður niðurfelling og afsláttur af næstu leikskólagjöldum sem nemur afslættinum sem við hefðum átt að fá í haust. Ég er alls ekki á móti þessum reglum því að þetta hendir út svindlurunum því það borgaði sig víst að skrá sig í háskólann og greiða "skráningargjaldið" og fá svo námsmannaafsláttinn af leikskólagjöldunum - en að nokkur hafi í alvörunni gert þetta veit ég ekki (þeir hljóta í það minnsta að hafa háan vesenaþröskuld) en einhver hlýtur ástæðan að vera fyrir þessari breytingu. Fannst bara einhvern veginn enginn vita neitt þegar ég hringdi þangað en því verður nú áreiðanlega kippt í liðinn... og svo hafa þeir nú sagst ætla að taka tillit til allra aðstæðna þannig að ef maður skyldi nú falla í meira en 75% ætti maður nú að geta fengið einhverjar undanþágur...

Nú stendur yfir heimildarleit mikil - fyrir blessaða BA ritgerðina sko. Ég á áreiðanlega eftir að leggja þetta blogg undir væl yfir þessari ritgerð en so be it. Ég hlakkaði ótrúlega mikið til að byrja á þessu en svo þegar ég er byrjuð þá einhvern veginn nenni ég ekki. Gefst ekki upp samt! Þræla mér í gegnum dönskuna, sænskuna, norskuna og enskuna með hjálp einstaka orðabóka og fer sífellt fram. Taldi mig nokkuð góða í að lesa þessi tungumál að minnsta kosti en hef komist að því lestur lögfræðitexta er allt annað en að lesa rauðu seríuna, Agöthu Christie og Anders And á dönsku og auðvitað hinn sænska Kalle Anka (Anna Linda þú leiðréttir mig bara ef ég er að uppnefna frænda þinn eitthvað). Jafnvel enskan getur snúist upp í óskiljanlegan texta og hef ég þó ófáar enskar Agöthur lesið og ófáa ameríska sápuóperuna séð, meira að segja kíkt á Matlock og fleiri góða og einhverja lögfræðifrasa hlýtur maður að hafa pikkað upp af því. En á endanum hlýtur þetta að hafast!

Kv. Mamma

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Hamingja ennþá...

Nú er komið út úr tveimur prófum! Kröfurétti og réttarfari. Mín náði báðum - hæ hó og jíbbííjei. Á eftir að fá út úr refsiréttarprófinu sem gekk verst í minningunni allavega, ótrúlegt alveg hreint hvað maður gleymir þessu fljótt, man varla hvað var spurt um á þessu prófi. Var búin að læra mest og best undir þetta andsk.. próf og svo koma "þeir" með 4 tíma próf sem maður á að gjöra svo vel að taka á 3 tímum. Fengum skitið korter til að reyna að lappa upp á klúðrið - isssss!! Leiðinlegt þegar maður getur ekki látið ljós sitt skína vegna svita og titrings við að klára prófið. Það átti að koma út úr þessu prófi í dag en er ekki ennþá komið. Ég og bekkjarsystir mín sátum hér heima í taugaæsingi yfir tölvunni í dag að bíða eftir blessaðri einkunninni en ekki kom hún.. fengum í staðinn að vita að við náðum hinum tveimur! Ótrúlegt hvað svona bið getur framkallað mikil líkamleg viðbrögð eins og nettan sting í bumbuna og titrandi hendur og þó hefði ég talið mig frekar easy going.. Jæja maður fær í það minnsta námslán og það er það sem máli skiptir (he hemm, segir hún í örvæntingu sinni). Já og endurgreiðsluna frá Kópavogsbæ vegna leikskólagjaldanna. Nú þarf maður ekki bara að standa sig til að fá námslánin, heldur þarf maður nú að sýna fram á sama árangur (75%) til að fá endurgreitt frá Kópavogsbæ. Nú greiðir maður nefnilega fullt gjald en fær svo námsmannaafsláttinn þegar einkunnir koma. Pressa, pressa...

Skólinn byrjar ekki fyrr en 9. janúar og þá er námskeið vegna B.A. ritgerðarinnar sem stendur til 13. janúar. Sjálfir fyrirlestrarnir byrja ekki fyrr en 16. janúar skilst mér. Er að reyna að koma mér í gang samt. Ætla upp í skóla á morgun svona rétt til að koma mér í fyrsta gírinn í það minnsta þó að ég geri áreiðanlega ekki mikið. Hmmm maður ætti kannski að fara að snúa sólarhringnum við og fara svona einu sinni "snemma" að sofa!

God nat,
Mamma

mánudagur, janúar 02, 2006

First time bloggers...

"... bíddu aðeins ég þarf að kyngja munnvatninu." Fjör og aftur fjör. Þeir feðgar eru að ærslast - og það er ekki einu sinni tími til að kyngja munnvatninu.

Við fjölskyldan höfum ákveðið að byrja að blogga á nýju ári! Fjölskyldan samanstendur af 4 ára stórskemmtilegum dreng, þrítugum pabba og 27 ára gamalli mömmu. Sjáum til hvernig þetta á eftir að ganga enda er hér um að ræða afar upptekið fólk...

Árið byrjar alveg hreint ágætlega. Ég og sonurinn sváfum til 11 í morgun og hefðum svei mér þá sofið lengur ef að pabbi hefði ekki vakið okkur. Leikskólinn bíður bara þangað til á morgun enda er ég í "fríi" til 9. janúar. Reyndar þarf ég að fara að drífa mig í að byrja á blessaðri B.A. ritgerðinni svo að ég geti leyft mér að fara til Kanarí í tvær vikur eftir 22 daga!!! OMG hvernig ég næ því svo að klára drögin fyrir 15. febrúar veit ég ekki. Ætli ég verði ekki bara á ströndinni með lappann að pikka - enga suðræna kokteila fyrir mig!

Jæja drengurinn kallar á Lucky Charms - já sukkið er að verða búið og á morgun verður ekki Lucky Charms í eftirrétt!! Grannmeti og átvextir og ekkert annað enda komið nýtt ár og strengd hafa verið heit um heilsusamlegra fæði...

Blessi ykkur í bili,
Mamma