Pillows

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

BA-brjálæði...

Vinnuskjöl stjórnvalda eru undanþegin upplýsingarétti skv. 3. tl. 4. gr. upplýsingalaganna nr. 50/1996. Þau eru samt ekki undanþegin aðgangi ef þau hafa að geyma endanlega ákvörðun stjórnvalds eða upplýsingar sem ekki verður aflað annars staðar frá... Undantekningarnar í 4. gr. eru undantekningar á meginreglunni. Um þetta er ég að skrifa 15 - 25 blaðsíður. 10 síður komnar 5 - 15 blaðsíður to go. Undarlegustu hlutir verða áhugaverðir þegar maður bara fer að skoða þá! T.d. finnst mér fátt skemmtilegra þessa dagana en að lesa úrskurði úrskurðanefndar upplýsingamála aftur og aftur og aftur og stöðugt uppgvöta eitthvað nýtt.

Lögfræðin í hnotskurn - undantekning á meginreglunni og undantekning frá undantekningunni - ekkert "svona-er-reglan-punktur"... endalausar pælingar um hin minnstu smáatriði. Nú kemur smámunasemin í góðar þarfir!!

Kv. BArbamamma

P.s. mér er það lífsins ómögulegt að skrifa um eitthvað annað en efnið sem hefur átt hug minn allan síðustu vikur enda takmörkuð með eindæmum.

föstudagur, febrúar 17, 2006

Hef komist að því...

... að bjór er góður í hófi þegar maður er að læra - ekki í óhófi...
Kv. R

Spurningar...

1. Hvað er klukkan? 10.50 f.h.
2. Fullt nafn: Ragna Rós Pálsdóttir
3. Líkamsgötun: Eitt gróið í vinstra eyra og annað sem er að lokast í hægra eyra (götun á gamalsaldri sem fór út um þúfur...)
4. Hvaða mynd sástu síðast í bíó? Man það ekki einu sinni en hefur áreiðanlega verið einhver barna- og fjölskyldumyndin...
5. Jarða eða brenna? Jarða
6. Fæðingarstaður: Reykjavík
7. Hefurðu komið til Afríku? Já reyndar - ekki inn í svörtustu Afríku reyndar en hef komið í lítinn bæ sem heitir ÐÐÐÐjáda og er hinu megin við Gíbraltar...
8. ...verið handtekin/n: nei hvorki beint né óbeint ;)
9. ...grátið yfir því hvað þú elskar e-n mikið: Já áreiðanlega a.m.k. legið við gráti... svona örlað á einu eða tveimur tárum
10. ...lent í árekstri: Kýs að svara þessari spurningu ekki svo að örlögunum verði ekki storkað...
11. Brauðteninga eða beikonbita : hmmm saman kannski, með eplabita innan í og osti, hitað í ofni...?
12. Uppáhalds dagur vikunnar: Laugardagur
13. ...matur: kjúklingur
14. ...veitingastaður: nammi nammi margir.... erlendir sem innlendir.
15. ...blóm: Dálítið veik fyrir bláum blómum af öllum tegundum, t.d. finnst mér gleym-mér-ei afskaplega fallegt og svooo hentugt, bara hægt að líma það beint á fötin...
16. ...íþrótt að horfa á: Listdans á skautum (parakeppnin er skemmtilegust), einstaka fótboltaleik..
17. ...drykkur: ég vildi að ég gæti sagt vatn en Coca Cola er og verður gott (sama hversu mikið maður reynir að hætta...)
18. ...ís: mmm ferskur ávaxta sorbet
19. ...skyndibitastaður: Friday's
20. ...liturinn: blár
21. ...sjónvarpsþættir: enginn einn þessa dagana - bara það sem ég næ í þessar 10 mín. eftir að ég kem heim á kvöldin og áður en ég fer að sofa..
22. Disney eða Warner Brothers: Hef ekki sest niður og myndað mér skoðun á þessum fyrirtækjum... segi Disney vegna ástarsambands míns til margra ára við Andrés Önd og félaga
23. Hvernig gólfefni er í svefnherberginu? Gegnheilt parket (þarf það að fylgja sögunni að það er eldgamalt?)
24. Hversu oft féllstu á bílprófi? Aldrei (na na bú bú leiðinda prófdómari sem lét mig gera fökking allt sem hægt var að prófa...)
25. Frá hverjum fékkstu síðast tölvupóst (fyrir utan þennan)? Kolbrúnu Lindu skrifstofustjóra lagadeildar um námskeið í lagadönsku sem ég bæ þe vei skráði mig á...
26. Í hvað eyðirðu mestum tíma: lærdóm og drengina mína tvo (sko soninn og pabba hans), BHJ fær nú drjúgan hluta tíma míns hérna á Löbergi líka he he...
27. Háttatími: stundum allt of seint og stundum allt of snemma en sjaldnast þarna á milli
28. Hver verður fyrst/ur til að svara þessu e-maili? Þar sem ég set þetta á bloggið okkar þá á þessi spurning ekki við...
29. Hver er ólíklegastur til að svara? Á ekki við
30. Svörin frá hverjum ertu mest forvitin/n að lesa? Svör allra sem nenna að gera þetta
31. Með hverjum fórstu síðast út að borða: með Kanarí-eyja-förunum
32. Ford eða Chevy: Ford (Escape sko!!)
33. Á hvað ertu að hlusta núna: Ekkert - með iðnaðarmanna-heyrnartól á höfðinu í boði Berglindar Helgu
34. Hvað ertu með mörg húðflúr? Ekkert
35. Hvað áttu mörg gæludýr ? 1 gæludýr, rassgatið hana Andras, Andrösu.. uhh ekki alveg búin að gera það upp við mig hvernig þetta skuli beygt, spyr mannanaefnanefnd, Þórunn hér er kannski komið nafn á bumbuna Andras Ást... (frumnafn kattarins er Sandra..)
36. Hvort kom fyrst, hænan eða eggið? Já og hvenær varð hæna hæna? Er nútíma hænan eins og sú sem var uppi fyrir 500 árum? Já ég bara spyr?
37. Hvaða fræga látna manneskja dettur þér fyrst í hug? Langaði að segja einhvern frægan íslenskan eins og Halldór Laxness en datt reyndar bara Marilyn Monroe fyrst í hug...
38. Á hve marga ætlarðu að senda þennan lista? verður ekki sendur út en settur á bloggið..
39. Fannst þér þú þurfa að leiðrétta stafsetninguna á listanum? Nei las þetta ekki með því hugafari
40. Gerðirðu það? Nei sbr. spurningin að ofan
41. Bættirðu við spurningum? Nei
42. Fylgirðu alltaf leiðbeiningum? Já, er svo takmörkuð, hugsa ekki út fyrir rammann
43. Hvort er skemmtilegra, handboltinn eða auglýsingarnar? Auglýsingarnar - hef reyndar verið aðdáandi auglýsinga síðan að ég var lítil
44. Hvað myndirðu gera við 300 milljónir? Hreinlega veit það ekki - borga fyrir hælisvist mína - hlýtur að vera nett sjokk að fá svona mikla peninga í hendurnar... og þar sem ég er svo óákveðin gæti ég ekki ákveðið það og fengi taugaáfalla og færi á hæli!!
45. Hvaða lýta/fegrunaraðgerð myndirðu fara í? Enga eftir að hafa séð The Swan og líka þætti
46. Ertu fylgjandi stríði? Nei aldrei
47. Ertu ánægð/ur með lífið?Þokkalega maður hefur það aldrei eins fínt og þegar maður er í skóla
48. Hverju myndirðu breyta? Jahh það fer eftir um hvað er spurt. Myndi í það minnsta ekki breyta neinu í mínu lífi eins og er, nógar hafa breytingarnar verið - maður þarf nú að setjast aðeins niður og anda fyrst..

Kv. RangíPoo

King Cheesecake...

...er rokknafnið mitt, ekki alveg eins glæsilegt og þitt Dadda ;)

Kv. K.C.

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=148377

þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Klukk....

Anna Linda klukkaði mig.... hér koma svörin:

4 störf sem ég hef unnið um ævina:
1. Unglingavinnan (Sunnuhlíð og leikskóli). Bæjarvinnan hét það svo eftir að maður varð 16.
2. Verkfræðistofa Gunnars Torfasonar
3. Línuhönnun, verkfræðistofa
4. Sýslumaðurinn í Kópavogi (get bara ekki slitið mig þaðan enda afskaplega ljúft að vinna þar blikk, blikk með von um vinnu í sumar)...

4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
1. Pretty Woman
2. Völundarhúsið (Labyrinth m/David Bowie og ungri Jennifer Connelly)
3. Ten things I hate about you
4. Star Wars (með syninum)

4 staðir sem ég hef búið á (tókst að toga þetta í 4 staði he he)
1. Skjólbraut 10, jarðhæð
2. Skjólbraut 10, miðhæð
3. Lautasmári 27
4. V.hv.

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
1. Lost
2. Friends
3. Sex and tne City
4. Desperate Housewives

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Spánn (Ibiza, Benidorm, Kanarí, Alicante, Bilbao o.s.frv. og með viðkomu í Afríku)
2. Köben, DK
3. Glasgow
4. Akureyri

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg (þessa dagana):
1. hi.is
2. retsinfo.dk
3. gegnir.is
4. ursk.forsaetisraduneyti.is/urskurdir

4 matarkyns sem ég held uppá (erfitt að telja svona upp þegar maður er nýbúinn að borða..):
1. Steinbítur
2. Nautakjöt
3. Croissant (á Select)
4. uhhhh bara, bara bland í poka (af því mig langar í það núna en það er kannski ekki matarkyns?)

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
1. Heima að leika mér í Spiderman með syninum og pabba hans
2. Í Kaupmannahöfn
3. Á sólarströnd
4. Búin með skólann og að vinna...

4 sem eiga að gera þetta líka:

1. Þórmundur
... og allir sem ekki eru búnir að þessu og langar til.

laugardagur, febrúar 11, 2006

Kanarí, Kanarí, Kanarí, rí, rí, rí

Kanarí í frí er málið. Maður hafði dálítið tengt þennan stað við gigtveikt og gamalt fólk (hmmm og tengdóin sem eru reyndar kornung) en raunin er að þarna er fólk á öllum aldri þó að gráhærðir séu þarna í meirihluta, sérstaklega á hótelinu. Þegar út af hótelinu var komið þá blasti við fólk á öllum aldri. Gamla liðið sat sem fastast á sínum bekkjum sem það hafði slegist um í ljósaskiptunum og fór ekki þaðan allan daginn held ég! Í hótelgarðinum fór sem sagt fram steiking, vægast sagt, skorpubrúnir ellismellir hvert sem litið var. Stríðið um sólbekkina stóð greinilega sem hæst því að þegar maður kom út í garð eftir að hafa sofið út eins og alvöru Íslendingur (maður er í fríi for crying out loud!!) þá voru handklæði á hverjum bekk en ekkert fólk að sjá. Eftir morgunmat fylltist svo allt. Þeir á hótelinu höfðu þó fulla stjórn á þessu öllu saman og jakkafataklæddur maður gekk um með blokk, penna og skeiðklukku að mér sýndist og tók handklæði miskunnarlaust af þeim bekkjum sem honum þóttu standa of lengi mannlausir en handklæddir. Gömlu vinir mínir voru assgoti harðir í sólböðunum og sátu þrátt fyrir að rigningaskýin hefðu hrannast upp og það lá við rigningu.

Við fjölskyldan vorum ekki á þeim buxunum að liggja í sólbaði alla daga og gerðum heilmikið, sbr. neðangreindur listi:
1. Tölvuleikjasalurinn var það sem heillaði ungann mest, vann mömmu sína og pabba 100 sinnum í þythokkí
2. Mínigolf - afskaplega spennandi líka og þar sigraði Þorri foreldra sína líka (hmmm)
3. Verslunar- og skoðunarferð til Las Palmas - það þurfti aukatösku..
4. Go-Kart - tvisvar. Þar kepptu "gömlu feðgarnir" og Þorri jr. og Mæja frænka fóru á míní-mótorhjól
5. Crocodillo-park. Þar voru krókódílar, skjaldbökur, fuglar, hestar, bambar, tígrisdýr, blettatígur, apar, talandi fugl o.fl. Leiðsögumaðurinn var lítill hundur!
6. Tívolí - tvisvar - og parísarhjól fyrir mömmu.
7. Tvisvar leigður bíll. Seinasta daginn brunuðum við fjölskyldan og afi P. hringinn í kringum eyjuna m.a. eftir hrikalegum fjallvegi.
8. Kafbátur þar sem undirdjúpin á 25 m dýpi voru könnuð.
9. Ströndin og sjórinn.
10. Fimmtugsafmæli ömmunnar. Lillinn svaf af sér matinn en vaknaði hress í kráarröltið á eftir.
11. Nokkrar sundlaugarferðir í ískalda laugina og smá sólböð.
12. Almennt flakk og flandur...

Þorri undi sér afskaplega vel í sólinni - hann er sannkallað hitabeltisdýr og það var rétt eins og hann hefði alist upp í heitustu S-Ameríku því hann vildi vera kappklæddur meðan að foreldrarnir voru á stuttbuxum og hlýrabolum. Frændsystikinin öll sex voru prúð og léku sér fullt saman og það skemmtilegasta á kvöldin var leikgrindin í hótelgarðinum
Veðrið var gott mest allan tímann og það rigndi einu sinni. Hitastigið var almennt svona um og yfir 20°, sól alla daga en stundum skýjað hluta úr degi (fyrir veðurþyrstar manneskjur;)).

Kveðja Kanarí-konan og co.