Maraþon-helgi
Helgin og rúmlega það fór í að semja eitt stykki minnisblað í námskeiðinu Stjórnsýsluréttur III og frábært matarboð hjá MG. Maður ætlaði nú að vera penn og fara heim bara svona um miðnætti en "when you're having fun" o.s.frv. Maturinn var stórgóður, sömuleiðis eftirrétturinn og félagsskapurinn. Matarboðið og eftirleikurinn var alveg þess virði að vera til klukkan þrjú í nótt að klára minnisblaðið og svo er alltaf dálítið fjör að vera undir smá pressu á lesstofunni ásamt öðrum sveittum laganemum. Svo hitti ég líka Bellu gellu niðri í bæ og það er alltaf gaman.
Nú tekur við hálfs dags aflslappelsi og svo tekur við ritgerðarsmíð í Mati á umhverfisáhrifum sem á að skila um mánaðarmótin og þá er bara eitt verkefni eftir í Skuldaskilarétti. Eftir það koma svo páskar og stórafmæli "litla prinsins" (MP þessi var bara fyrir þig hehehe).
Kveðja, Pelgan
