Pillows

föstudagur, mars 24, 2006

Draumráðningar...

Dreymi þig að þú sért við barnfæðingu, boðar það giftingu mjög bráðlega....

Auglýsi eftir brúðkaupi í sumar!!!

R.P

fimmtudagur, mars 23, 2006

Twins...

Nú fæ ég að sjá alvörunni tvíbura vonandi í næstu viku!!! Ég hef aldrei séð nýja tvíbura - bara gamla þannig að þetta verður algerlega ný upplifun. Ólöf Ingunn og Villi eignuðust sem sagt tvo stráka á mánudaginn. Svo talaði ég við Þórunni í gær sem ætlar að eignast stelpu þann 15. maí. þannig að það verður nóg að gera hjá mér að knúsa smábörn næstu mánuðina og út árið því að Guðrún Ása ætlar líka að eignast barn í sumar. Mig dreymdi sem sagt barnsfæðingar í nótt!!

Randó

sunnudagur, mars 19, 2006

Hjartsláttur...

Afkvæmið indæla varð svo veikt á föstudaginn. Mér stóð nú eiginlega ekki á sama þegar ég sótti hann á leikskólann eftir símhringingu frá þeim, enda var hann allur einhvern veginn máttlaus og brennandi heitur. Hann hafði orðið veikur eftir hádegið og byrjaði að kvarta undan verkjum í eyrunum. Mér brást tilfinningin núna - ég vissi einhvern veginn ekkert hvort að þetta væri eitthvað til að hafa áhyggjur af eða ekki. En þegar við komum út í bíl varð ég svolítið hrædd því að hann byrjaði að æpa af kvölum. Við brunuðum upp á heilsugæslu þar sem hjúkrunarfræðingur tók á móti okkur - indæl kona sem að kom heim þegar Þorri var nýfæddur. Hún sagði okkur að fara bara strax upp á spítala enda hefur hún sennilega séð skelfingarsvipinn á mér með máttlaust barnið í fanginu. Hún spurði einmitt hvort ég þekkti ekki mitt barn og ég svaraði að sjálfsögðu játandi enda var þetta ekki eðlilegt fyrir hrausta drenginn minn sem eiginlega aldrei fær hita - man ekki einu sinni hvenær ég mældi hann síðast, það eru áreiðanlega tvö ár síðan í fullri alvöru. Hún var svo góð að hringja á undan okkur niður á spítala. Nú upphófst erfið bílferð því að Þorri öskraði enn meira en áður og var við það að lognast út af þess á milli. Ég þorði ekki öðru en að halda honum vakandi. Þegar við komum á spítalann fórum við strax inn. Þegar ég var að ganga inn fann ég hvernig hann alveg snarkólnaði og einhvern veginn fékk kraftinn aftur. Pabbi hans kom úr vinnunni enda vorum við foreldrarnir, orðin dáltítið stressuð. Þegar við komum svo inn á skoðunarherbergi var hann orðinn miklu rólegri og hressari, leyfði hjúkrunarfræðingnum að mæla blóðþrýstinginn og var meira að segja að gera gamni sínu við hana. Svo mældi ég hann og hann var hitalaus - ótrúlega skrýtið. Læknirinn vildi samt halda honum aðeins og honum voru gefin verkjalyf. Við fjölskyldan biðum þarna í einhvern smátíma og Þorri sofnaði. Hann var svo bara orðinn hress þegar hann vaknaði og ekki að sjá að hann hefði eitthvað verið veikur....

þriðjudagur, mars 14, 2006

Meistari Jakob (gamli)

Í haust byrja ég í meistaranámi.... OMG það er eitthvað svo fullorðins (segi ég háöldruð manneskjan - er ekki með neina komplexa sko). Ég byrja sem sagt í haust ef að allt gengur að óskum í vor!! Þá get ég farið að læra skemmtileg fög eins og t.d. verktaka- og útboðsrétt, evrópurétt, ofbeldisbrot frá sjónarhóli kvennaréttar, fullnusturétt og allt um EU Directives on Data Protection and Individual Rights in Health Sector Research o.fl. o.fl.

En um helgina aftur á móti fór ég á skrall með Önnu Lindu Næseril sem að kom sérstaklega til Íslands um helgina til þess að hitta okkur vinkonurnar. Þetta var ljúft en var komin heim um hálf-fjögur (eitthvað er maður (den gamle) nú farinn að daprast en er alls ekki með komplexa yfir aldrinum í alvöru!!). En það var gaman að hitta Önnu Lindu sem hefur gefið mér loforð um að flytja aftur heim í sumar (eða ég fékk hana til þess eftir "tvö" glös).

R.P (eða Randa í sviga)

þriðjudagur, mars 07, 2006

Jæja, jæja...

nú er ég búin að skila ófullbúnum fullbúnum drögum upp á tæpar 17 bls. Veit ekki hversu mikinn húmor leiðbeinandinn minn hefur fyrir öllum athugasemdunum mínum og spurningunum sem ég fléttaði inn í þau... en þetta er í það minnsta búið í bili. Smá breik til að byrja að lesa fyrir refsirétt, kröfurétt og réttarfar já og lagadönskuna sem er náttúrulega ótrúlega skemmtileg (í alvöru)!!! Nóg um skólann - ekki beint intressant blogg-efni.

Ég átti aftur á móti geysilega skemmtilega helgi sem fól í sér engan lærdóm sem er tilbreyting. Á föstudaginn fór ég í óléttu-/innflutnings-/veislu-boð.. Hún Þórunn stórvinkona mín er flutt í Reykjavík- sem eru reyndar dálítil svik við Kópavog en ég fyrirgef henni það þar sem hún flutti nú ekki langt. Hjá Þórunni voru þrjár óléttar píur og svo ég og Berglind Eva. Þær eru sem sagt frjósamar sem fyrr þessar vinkonur mínar og það eru meira að segja á leiðinni tvíburar!! Mér finnst það alveg stórmerkilegt fyrir utan það hvað það er yfirhöfuð merkilegt að geta bara búið til eitt stykki barn!! OMG segi ég nú bara.. verð eiginlega að skella inn mynd af ólétta-genginu bráðlega eða eftir því sem letin leyfir... Ekki spillti heldur fyrir að fá góðar veitingar í návist allra þessara ófæddu barna en Þórunn sú myndarlega stúlka var búin að skella í eina blauta súkkulaðiköku og gera beikon-brauð-epla-bita sem er það besta sem hér á jörðu fæst.

Á laugardaginn skelltum við skötuhjúin okkur í partý hjá Berglindi Helgu. Þetta var Buzz-partý með meiru. Geggjað stuð og Randa Panda sem hefur ekki verið þekkt fyrir áhuga sinn á popptónlist fékk fyrir einskæra heppni hæsta skor kvöldsins. Ég held því fram og mun halda því fram að ég sé gædd yfirnáttúrulegum giskhæfileikum með heppnisívafi enda hef ég átt ótrúlega spretti í t.d. spilum eins og Popppunkti... og þeir sem þekkja mig vita að ég á enga diska með Birgittu eða Britney eða aðra diska yfirhöfuð nema þessa sem ég fékk í fermingargjöf. En nú er ég hrædd um að ég sé forever búin að jinxa þessari heppni minni með því að játa þetta opinberlega. Nei segi það ekki að ég hlusti aldrei á tónlist og hafi ekkert gaman af henni - ég bara kaupi ekki diska (og downloada ekki heldur). Hef meira gaman af því að láta koma mér á óvart og hlusta bara á útvarpið......

Kveðja hin "LAGLEGA" R.P.
(nánari útskýringar á laglegri Rögnu fást hjá Villa hennar Ólafar)