Pillows

miðvikudagur, október 04, 2006

Nýtt líf.....(fögur fyrirheit)

Á morgun skal ég læra eins og enginn hefur lært áður. Ástæðan er einföld! Í dag fæ ég nýja tölvu. Ég stend nefnilega í þeirri trú að þessi veraldlegur hlutur geti bjargað mér frá eilífri leti. Undarlegt hvað maður getur endalaust blekkt sjálfan sig: eftir að ég fæ tölvuna get ég byrjað, verð ógeðslega dugleg þegar ég kem heim frá Árósum, æ sef út núna og svo aldrei aftur o.s.frv. Annars er tilefni þessara tölvukaupa það að tryggingafélagið VÍS hefur greitt mér þá gömlu sem var dæmd ónýt eftir ýmis áföll sem heimilistryggingin dekkaði og því höfum við fest kaup á nýrri ASUS tölvu frá Boðeind - eðalgripur alveg hreint og með vefmyndavél þannig að elskulegar "skandinavískar" og íslenskar vinkonur mínar geta séð mína fögru ásjónu í gegnum MSNið. Eru þið ekki farnar að hlakka til? (Ekki það að ég ætli eitthvað að fara að hanga á MSN allan daginn þar sem ég verð svo ægilega upptekin við hið nýja lærdómslíf....eða sko þannig...)

Kveðjur og svo framvegis, Ragna lata bloggstúlkan